|
Það er því miður eðlilegt að litur tanna breytist með tímanum. Ef tennur okkar hafa dökknað eða hafa alltaf verið dekkri en við erum sátt við er hægt að nota hvíttunaraðferðir til að lýsa tennurnar. Tannhvíttun gefur í flestum tilvikum mikinn árangur. Óhætt er að fullyrða að lýsing tanna eða "tannhvittun" hefur gjörbreytt möguleikum tannlækna til að fegra bros sjúklinga okkar.
Tannhvíttun er hægt að framkvæma með ýmsum hætti. Algengasta meðferðin er sú að mót eru tekin af efri og neðri tanngarði og smíðaðar sérstakar skinnur sem falla þétt að tönnunum. Þær eru notaðar til að halda sjálfu lýsingarefninu að þeim.
 
Dæmi um tannlýsingu eða tanhvíttun með lýsingarskinnu.
Fólk fær skinnurnar í sérstakri öskju sem það getur geymt þær í. Lýsingarefnið er í handhægum umbúðum sem tryggja að auðvelt sé að koma efninu ofan í skinnurnar. Síðan er annað hvort sofið með skinnurnar eða þær notaðar í tvær klukkustundir og oftast í 7-14 skipti til að góður árángur fáist. Stundum gengur þetta hraðar fyrir sig en fólk sér sjálft hvernig liturinn breytist og getur metið fjölda skipta eftir því. Mikilvægt er að nota ekki of mikið af efninu í skinnuna í hvert sinn. Það efni sem þrýstist út úr henni þegar hún er sett upp skolast strax burt og nýtist ekki.
Einnig er hægt að hraðlýsa temmir og er sú meðferð þá framkvæmd á tannlæknastofunni. Hraðlýsing tekur um það bil eina klukkustund. Stundum er byrjað með hraðlýsingu og síðan haldið áfram með skinnurnar til að ljúka meðferðinni. Með því móti næst skjótur árángur í byrjun en síðar er hægt að bæta á með heimalýsingu.
Rétt er að nefna að þeir sem eiga skinnur geta alltaf fengið meira af lýsingarefninu og haldið litnum við með því að lýsa í nokkur skipti á sex mánaða fresti. Þessar aðferðir hafa gefið mörgum afar fallegan tannlit og með hreinsun og blettameðferð er hægt að ná brosinu sem við sækjumst eftir. Tannhvíttun eða tannlýsing er eins sú algengasta meðferð sem framkvæmd er í dag.
Grein um Þórð og tannhvíttun (.pdf)
|