Tannhreinsun

Við tannburstun tekst ekki alltaf að fjarlægja öll þau óhreinindi sem safnast daglega á tennurnar. Þessi óhreinindi eru jafnan kölluð tannsýkla og samanstanda af sýklum, ýmsum úrgangsefnum þeirra og matarleifum. Ef hún nær að vera nægjanlega lengi á tönnum festist hún rækilega við þær og verður að lokum hörð og kallast þá tannsteinn. Með tímanum getur tannsteinnin safnað í sig lit og orðið meira áberandi. Á framtönnunm getur þetta orðið áberandi lýti.

 

Tannhreinsun hjá tannlækni eða tannfræðingi miðar að því að fjarlægja tannsýklu og tannstein og pússa yfir tanngarðinn þannig að tennurnar verða hreinar aftur. Oft er tannhreinsun undanfari meðferðar til að tryggja að fólk sé laust við alla bólgu og tannholdsvandamál.   

 

Þegar við gerum áætlun um meðferð er ákveðið hversu oft viðkomandi þarf að koma í hreinsun (hjá tannfræðingi) og hversu oft að hann þarf að mæta í skoðun. 

 


Tannhreinsun einu sinni til tvisvar á ári er nauðsynleg fyrir flesta. Þá er tannsteinn fjarlægður og blettir og mislitun fjarlægð. Tennurnar eru síðan hreinsaðar með sérstöku tannkremi sem gerir þær bæði gljáandi og fallegri. Þessi meðferð heldur tönnunum hreinum og fallegum ásamt því að halda þeim heilbrigðum og unglegum. 

 
Við viljum öll varðveita tannheilsu okkar eins og kostur er. Regluleg hreinsun sparar kostnað og viðheldur fallegu útliti. Við erum með afar fullkomið tölvukerfi sem sér til þess að innköllun sé framkvæmd á réttum tíma.  Við sjáum þannig um að minna sjúklinga okkar á að mæta í reglubundið eftirlit.