Postulínsfyllingar - CEREC

Óhætt er að segja að Cerec fyllingar hafi valdið straumhvörfum í tannlæknaheiminum. Um er að ræða hágæða postulínsfyllingar sem eru endingarbetri í jöxlum en plastfyllingar.  Einn af aðalkostunum við þessar fyllingar og krónur er að þeim er hægt að ljúka í einni heimsókn.  Oft er hægt að gera 3-5 tennur í sömu heimsókn og flýtir það mjög fyrir meðferð og hentar vel þeim sem ekki hafa tíma í margar heimsóknir.

Markmið okkar tannlækna hefur ávallt verið það að bjóða bestu fáanleg fyllingarefni. Á árum áður var nánast eingöngu hægt að nota gull eða silfur sem fyllingarefni í jaxla. Þótt bæði þessi efni hafi verið vel nothæf  fylgdu þeim ýmsir annmarkar sérstaklega hvað útlit varðar.  Þótt aldrei hafi tekist að sanna með óyggjandi hætti að kvikasilfrið í gömlu amalgam (silfur) fyllingunum sé hættulegt heilsu manna er full ástæða að reyna að takmarka notkun þess eins og unnt er, þó ekki sé nema vegna umhverfissjónarmiða.



Cerec aðferðin byggist á því að tönnin er hreinsuð af tannskemmd og leifar af gömlum fyllingum eru fjarlægðar. Síðan er tekin “mynd” af tönninni sem er færð yfir í tölvu og hún notuð til að hanna fyllingu. Þéttur og afar sterkur postulínskubbur er síðan fræstur til þannig að hann passar nákvæmlega í tönnina.  Kosturinn við þessa tækni er sú að hægt er að búa til sterkar postulínsfyllingar eða krónur í einni heimsókn og losna við bráðabirgðafyllingar og máttökur. CEREC tæknin gefur  okkur tannlæknum kost á því að gera við margar tennur í einni heimsókn og eykur þægindi fólks. Málmlausar tannlækningar eru loksins orðnar að veruleika.



Kostir Cerec fyllinga

  • CEREC fyllingar og krónur eru búnar til meðan þú ert í stólnum með tilheyrandi tímasparnaði. Þú þarft ekki að gera þér aðra ferð til tannlæknsins og fá aðra deyfingu.
  • Með CEREC tækninni þarf ekki að smíða bráðabirgðakrónu en þær gátu átt til með að losna og juku á áhættuna á leka við brúnir.
  • CEREC krónur og fyllingar eru málmlausar og eru því mjög líkar glerungi tannana.
  • Styrkur CEREC postulínsins gerir það að mjög endingargóðu fyllingarefni þar sem ella væri nauðsynlegt að nota silfur eða plast.
  • Öll plastefni sem notuð eru til tannfyllinga hafa þann ókost að þau dragast saman þegar þau eru ljóshert við ísetningu. Við þennan samdrátt skapast hætta á því að leki verði við brúnir.  Þessi hætta eykst því stærri sem fyllingin er. Einnig er ákveðin hætta til staðar að við samdrátt plastsins komi sprungur í þunnar glerungsbrúnir. CEREC fyllingar eru hannaðar í tölvu og síðan fræstir úr postulínskubbum þannig að þær passa afar nákvæmlega ofan í tönnina. Síðan er fyllingin fest með sértstöku lími. Þessi aðferð, ásamt þeirri staðreynd að þanstuðull postulíns er svipaður og hjá tönninni, tryggir góða endingu þar sem síður er hætta á því að glufur opnist við brúnir.