Nýjar lausnir fyrir tannlausa
Fastar tennur að nýju.

 

Það hefur lengi verið draumur tannlækna að geta gert tannlausa tennta að nýju.
Tannplantar geta breytt öllu fyrir folk sem hefur misst sínar tennur.
Fastar tennur sem eru nánast eins og þær upprunalegu eru nú orðinn kostur sem flestir tannlausir eiga möguleika á.
Að geta brosað og tuggið án vandræða eru sjálfsögð lífsgæði.
Dæmið hér að neðan sýnir fastan neðri góm sem gjörbreytti öllu fyrir viðkomandi.  Gómurinn situr fastur á 4 tannplöntum.

 

 

 

Heilgómar studdir tannplöntum

 
Hér á árum áður var algengt vandamál hjá tannlausum einstaklingum að neðri gervigómurinn væri laus.  Oft var skýringin sú, að tennur höfðu verið fjarlægðar fyrir löngu síðan og kjálkinn þ.a.l. orðinn svo rýr að lítil festa var fyrir heilgóma. Ástandið gat orðið svo slæmt að viðkomandi var í erfiðleikum með að tyggja, tala skýrt eða brosa.
Nú hafa orðið framfarir sem gefið hafa tannlæknum nýja möguleika til að leysa úr þessum vanda. Með stuttri og tiltölulega einfaldri aðgerð er hægt að koma fyrir tveimur eða fleiri tannplöntum í kjálkabeinið. Að tveimur til þremur mánuðum liðnum er svo smíðaður gómur sem hægt er að smella á þar til gerðar festingar, sem komið er fyrir á tannplönturnar.
Gervitennurnar verða fyrir vikið mun fastari og hreyfast minna við tal eða tyggingu. Rannsóknir sýna að fólk sem fær plöntugóma er ánægðara, en þeir sem fá hefðbundna heilgóma. Einnig eru vísbendingar um að almenn heilsa þeirra eflist, sem má líklega rekja til bætts mataræðis.
Kostir þessarar meðferðar eru þeir, að hún er tiltölulega einföld og kostnaður ekki óviðráðanlegur. Talið er óhætt fyrir flesta að fara í aðgerð sem þessa,  þar sem sjaldgæft er að heilsufarsleg vandamál útiloki ísetningu á tannplöntum. Fyrir ellilífeyris - og örorkuþega er hægt að sækja um þátttöku Tryggingarstofnunar sem greiðir þá hluta af kostnaði.
Þó að þessi meðferð sé algengari fyrir neðri góminn, er einnig hægt að setja tannplöntur undir efri tanngóma, en þá þarf oftast fleiri en tvær plöntur og kostnaður því meiri. Auk þess eru efri gómar yfirleitt stöðugri og því sjaldgæfara að nauðsynlegt sé að auka festu þeirra með þessum hætti.