|

CEREC Þessi tækni er einstök. Með hjálp tölvu er fylling hönnuð í tönnina og síðan búin til úr postulíni. Sterkt, fallegt og endist vel. Gamla silfrið er á undanhaldi og plastfyllingar og postulínsinnlegg er sú meðferð sem fólk kýs í vaxandi mæli. Flestir vilja brosa og hlæja án þess það sjáist í dökkar fyllingar.

VIDEÓ VIÐ STÓLINN
Við bjóðum upp á frábæra leið til að stytta ykkur stundir. Við alla stólana eru tengd skjágleraugu sem gefa fólki kosti á að horfa á þætti eða kvikmyndir meðan við erum að vinna. Börnunum finnst mjög gaman að geta horft á teiknimyndir til að dreifa huganum meðan gert er við tennurnar.
VINNA MEÐ STÆKKUN
Hárnákvæm vinnubrögð vegna stækkunar eru að verða staðallinn í dag. Með því að nota sérsmíðuð stækkunargleraugu tekst tannlæknum að veita fólki enn betri og öruggari þjónustu en áður.
NÝTT TÖLVUKERFI
Við verðum með fyrstu tannlæknstofum á landinu til að taka í notkun Opus tölvukerfið. Breyting frá fyrri forritum er veruleg og hægt verður að bjóða ýmsa nýja möguleika í tímabókunum og öðrum samskiptum.
STAFRÆNAR RÖNTGENMYNDIR
Þessi tækni hefur tekið stórstígum framförum sl. ár. Kostir þess eru að geislun er mun minni, myndir eru innan við 10 sec í framköllun og hægt er að nota tölvur til að aðstoða við greiningu. Semsagt, meira öryggi og betri þjónusta.
|