|
Markmið fegrunartannlækninga er að bæta útlit tannanna. Í samfélagi okkar skiptir útlit meira máli en áður. Þótt við eigum ekki að dæma fólk eftir útlitinu skiptir samt máli að vera með aðlaðandi bros. Það er eftir því tekið ef við erum með bólgið og rautt tannhold, skemmdar eða dökkar framtennur eða annað sem dregur úr fallegu brosi.
 

Margir halda að tannlækningar snúist einungis um það fylla í holur. En nú á dögum geta tannlæknar boðið sínum fólki afar margar leiðir til að bæta útlit tanna.
 
Hér sést vel hvernig krónu og brúargerð getur gjörbreytt brosinu.
Dæmi um það sem hægt er að breyta.
- Skipta út gömlum mislitum plastfyllingum.
- Hvítun tanna með lýsingarefnum.
- Skakkar eða snúnar tennur færðar með tannréttingum eða fyllingum.
- Hægt er að loka bilum milli tanna.
- Postulíns skelkrónur eða plastskeljar til að breyta útliti tanna.
- Hvítar plastfyllingar í forjaxla og smærri jaxlafyllingar.
- Cerec postulíns innlegg fyrir jaxla.
- Breyting á úliti tannholds, s.s. lenging tanna eða jöfnun tannholdslínu.
- Fylla í tannhálsaeyðingu.
- Færa tannholdseyðingu til baka með aðgerð.
- Bæta tanntap með brú eða tannplanta.
- Setja plastfyllingar á framtannabletti.
- Lengja eða stytta tennur.
|